Íbúðalánasjóður

Formaður nefndar um rannsókn á Íbúðalánasjóði er Sigurður Hallur Stefánsson, fyrrverandi héraðsdómari. Með honum í nefndinni eru Kirstín Flygenring hagfræðingur og Jón Þorvaldur Heiðarsson, lektor við viðskiptafræðideild Háskólans á Akureyri.

Er nefndinni ætlað að rannsaka starfsemi sjóðsins frá aðdraganda breytinganna á fjármögnun og lánareglum hans, sem hrundið var í framkvæmd á árinu 2004, og til ársloka 2010. Enn fremur á nefndin að meta áhrifin af þessum breytingum, stefnu sjóðsins og einstökum ákvörðunum á þessum tíma á fjárhag sjóðsins og fasteignamarkaðinn í heild sinni. Þá er nefndinni ætlað að meta áhrif starfsemi Íbúðalánasjóðs á stjórn efnahagsmála og loks að leggja mat á hversu vel sjóðnum hefur tekist að sinna lögbundnu hlutverki sínu á tímabilinu, sbr. þingsályktun Alþingis frá 17. desember 2010.


Fréttir og tilkynningar

Skipun rannsóknarnefndar Alþingis sem rannsaka á Íbúðalánasjóð

Gengið hefur verið frá frá skipun rannsóknarnefndar Alþingis sem rannsaka á Íbúðalánasjóð. Í henni eiga sæti Sigurður Hallur Stefánsson, fv. héraðsdómari, formaður nefndarinnar, Kirstín Flygenring hagfræðingur og Jón Þorvaldur Heiðarsson, lektor við viðskiptafræðideild Háskólans á Akureyri.

Lesa meira
 

Fara í fréttalista


flnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica