Skipun rannsóknarnefndar Alþingis sem rannsaka á aðdraganda og orsakir erfiðleika og falls sparisjóðanna
26. 08. 2011
Gengið hefur verið frá skipun rannsóknarnefndar Alþingis sem rannsaka á aðdraganda og orsakir erfiðleika og falls sparisjóðanna. Í henni eiga sæti Sigríður Ingvarsdóttir héraðsdómari, formaður nefndarinnar, Tinna Finnbogadóttir hagfræðingur og Bjarni Frímann Karlsson, lektor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.
Rannsóknarnefndin er nefnd sem komið var á fót með þingsályktun Alþingis frá 10. júní 2011. Nefndin er skipuð samkvæmt lögum nr. 68/2011 um rannsóknarnefndir.